"On the road to destiny, do not waver... Do not look back"

Eftir mikla umhugsun þá hef ég ákveðið að leggja bloggskrifin á "hilluna". Hætti hér með á "toppnum"... Hver veit hvort ég komi aftur, en þangað til ætla ég að halda mér við myspace! :)

 www.myspace.com/brynhildur89

-Brynhildur

 p.s. allar mynir fara þangað


Vonandi nær blaðamaðurinn sér...?

Þessi frétt er eiginlega bara aðeins of merkileg..! OMG!

En það sem ég velt aðallega fyrir mér er hvernig á því stendur að blaðamaðurinn hafi sagt Hugh Grant að hann ætti 2 börn, og eftir að Grant hafði hent baununum í hann?! Ég veit allavegana að ef einhver myndi kasta bökuðum baunum í mig þá myndi ég ekki svara því svona: "Ég á 2 börn"..

Hef það á tilfinningunni að þetta sé eitthvað "aðeins" of ýkt frétt. Ætla samt ekki að dæma neinn. Hugh Grant er langt því frá að vera í uppáhaldi hjá mér og getur vel verið að hann kasti bökuðum baunum í einhvern, það er reyndar líklegra heldur en hann kýli einhvern því efast um það að hann geti lamið nokkurn mann. En hver veit, kannski er hann svo fastur í hlutverkinu sem hann lék í Bridget Jones Diary! heheWink


mbl.is Hugh Grant óskaði börnum ljósmyndara dauða úr krabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaðallinn á milli tánna!

Já, þeta heyrði ég úr sjónvarpsþætti sem ég er að horfa á! ..viljið þið giska hvaða sjónvarpsþáttur það er?

 Annars er ég á fullu í öllu núna! Rembast við að læra, þjálfa, þjálfa, þjálfa, leita mér að íbúð (sem gengur btw ekki mjög vel) og svo líka margt fleira!

Bloggleti í gangi..? Já, ég bara held það sko! hahah, ég fer að taka mig á!

En styttist ógeðslega mikið í sumarið og ég hlakka crazy mikið til! Ég og Steinunn Anna erum að fara vinna saman í SR-grænmeti og það verður bara stemmning sko..:) Svo verður vonandi djammað eitthvað á kvöldin! Kannski maður mæti bara fullur í vinnuna einn sunnudagsmorguninn? nehh.. en það er nú spurning;)

Hef þetta nú svo sem ekkert lengra í bili....

Veriði sæl að sinni!

-Brynhildur


Fyrrum Londonarbúi?

Þegar ég las þessa frétt varð mér hugsað til Londonar-ferðalagsins míns fyrir 2 árum. En þar einmitt tókst mér að komast nær dauðanum en lífinu ef svo má að orði komast. Þessir Lundúnarbúar með sína öfugu umferð og fólk sem labbar yfir á rauðu gangbrautarljósi.. Jæja, heppin bara að vera svona ofursnögg að hlaupa!

 En þessi gæji, ætli hann sé ekki bara fyrrum Lundunarbúi sem man ekki hvernig þetta virkar á Íslandi?

-------

Í gær var ég að þjálfa (like always) á Ásvöllum í Hafnarfirði. Stelpunum gekk þokkalega, unnum 2 leiki en töpuðum einum. Svo er ég að fara leggja af stað aftur í bæinn að þjálfa 2 leiki í viðbót.

-Brynhildur


mbl.is Ók á gangandi mann og flutti hann síðan á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bogmaðurinn

Hinn dæmigerði Bogmaður er athafnamaður sem þarf hreyfingu, líf og fjölbreytni. Honum er illa við vanastörf og verkefni sem ekki eru ögrandi. Hann fær leið á því sem hann kann og veldur of auðveldlega. Að sama skapi á hann erfitt með að sitja lengi kyrr á sama staðnum. Hann þarf svigrúm og frelsi. Allt það sem þrengir sjóndeildarhring hans, festir hann niður og hindrar hreyfingu orkar þvingandi á hann.


Þekkingarleit

Eitt sterkasta einkenni Bogmannsins er fróðleiksþorsti. Hann vill kynnast heiminum, þráir þekkingu og vill hafa yfirsýn yfir margvíslegustu málefni. Hann nýtur þess að ferðast, læra og fást við verkefni sem víkka sjóndeildarhring hans.


Eirðarleysi

Þrátt fyrir áhuga á þekkingu eru sumir Bogmenn lítið fyrir langskólanám og þá sérstaklega nám sem er einhæft og afmarkað. Þetta má ekki túlka á þann veg að öllum Bogmönnum leiðist skólaganga. Það er ekki rétt, því margir njóta þess að svala forvitni sinni í fjölbreyttu námi og taka slíkt fram yfir einhæf störf á vinnumarkaði.


Hreyfing og stórhugur

Það má segja að til séu tvær algengar gerðir Bogmanna. Annars vegar er kraftmikill íþróttamaður sem leggur á unga aldri stund á fjöldann allan af greinum. Síðar fer hann út í atvinnulífið af sama krafti og leggur áfram áherslu á hreyfingu, frelsi og fjölbreytni. Hins vegar er það hinn huglægi Bogmaður sem leitar fróðleiks og tilbreytingar í bókum, námi, heimspeki, ferðalögum, menningu og listum. Stundum sameinast þetta tvennt í einum og sama manninum. Hver svo sem áherslan er nákvæmlega þá er Bogmaðurinn oftast stórhuga og takmarkalítill í hugsun og gerðum.


Bjartsýni

Bogmaðurinn er að öllu jöfnu jákvæður, hress og bjartsýnn. Hann er þægilegur í umgengni og þykir skemmtilegur félagi. Hann er lítið gefinn fyrir að búa til vandamál og vill sjá og sér bjartari hliðar tilverunnar. Hann er því oft líflegur og hressilegur. Það er oft sagt um Bogmanninn að hann sé heppinn. Það er líklega vegna þess að hann er glaðlyndur og því finnst fólki gaman að gera honum greiða. Einnig fer hann víða, prófar margt og er opinn fyrir tækifærum. Hann þorir að breyta til og takast á við ný verkefni.


Fjölbreytni

Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Bogmaðurinn að búa við fjölbreytta lífshætti. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, ferðast og vera frjáls, eða þarf að minnsta kosti að hafa það á tilfinningunni að hann geti gengið út hvenær sem er. Höft og vanabinding leiða til þreytu, nýjungar skapa lífsgleði og auka kraft hans.

Þegar talað er um 'Bogmanninn' og Bogmann', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Bogmannsmerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.

Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin

Hvað finnst ykkur, á þetta við mig?

-Brynhildur


Á stöðugum flótta

Í enn eitt skiptið hef ég ákveðið að skipta um blog-síðu.

Vil meina að það sé af því að ég er svo nýjungagjörn, t.d. vorum við Alda fyrstar til að skipta yfir í bloggar.is og svo skipti hún yfir í 123.is og nú ætla ég að vera fyrst til að fara á blog.is. Ætli sannleikurinn sé ekki bara sá að ég nenni ekki að uppfæra hina síðuna þar sem ég hef ekki bloggað þar í rúman mánuð. En hey, ég lifi í blekkingu...

Undan farin mánuð er ég búin að takast á við marga hluti. Þjálfa, þjálfa og þjálfa, læra og læra, æfa og æfa og margt fleira.. Einnig hef ég djammað helmingi meir en ég hef gert á þessu ári (er búin að fara alls 3var á djammið á árinu)! Þetta vil ég kalla metnað.

Páskarnir eru senn að líða með öllu sínu áti og leti. Tókst reyndar að hjóla fullt á milli áts og taka bottcampæfingu/ar. Já, ekki spyr maður að dugnaðinum.

Ég hef þetta ekki lengra í þetta skiptið, en ég blogga jafnvel aftur í kvöld!

-Brynhildur


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband